
„Ha! Eru gefnar út teiknimyndasögur eftir konur í Íran?“ spyr Vesturlandabúinn ég eftir að hafa uppgötvað áhugaverðan nýliða í teiknimyndasögubransanum, Marjane Satrapi. Um leið rámaði mig í að hafa séð kvikmynd eftir 18 ára íranskt stelpuskott; svo að tjáningarfrelsi kvenna í Íran virðist ekki gjörsamlega fótum troðið. Að vísu er Satrapi búsett í París og bækur hennar hafa aldrei verið gefnar út í Íran. Það hlaut líka að vera því þar mega konur varla sýna hárlokk án afskipta lögreglunnar, eða hvað? Í augum Vesturlandabúans er Íran fullt af mótsögnum, opinber ímynd og fréttaflutningur stangast á við þær fáu upplýsingar sem fengnar eru eftir öðrum leiðum.
Lesa áfram »