
Einn mikilvægur þáttur þjóðernishyggju, hvort sem er á Íslandi eða annars staðar, eru táknin sem eru fundin fyrir þjóðina. Þessi tákn eru þó ósjálfrátt í sífelldri endurskoðun í takt við það sem breytist í samfélaginu. Eitt af táknum íslenskrar þjóðernishyggju er hin hreina og óspillta náttúra Íslands sem Íslendingar eru mjög stoltir af. Hún er gjarnan sögð hafa mótað þjóðarsálina og menninguna í gegn um aldirnar. En eins og náttúran hafa hin „upprunalegu“ íslensku dýr líka orðið að þjóðartákni, þá sérstaklega hesturinn og sauðkindin, en einnig verður landnámshænan sífellt vinsælli. Hér ætla ég að tala um íslensku kindina sem þjóðernistákn.
Lesa áfram »