Um miðja síðustu öld kippti sér enginn upp við það að kvikmyndastjarna tæki sér stöðu við hljóðnemann og gæfi út plötu, annað hvort með þekktum smellum eða tónlist saminni af atvinnulagahöfundum. Þeir leikarar sem í dag hafa virkilegan áhuga á tónlist eru í hinsvegar í verulegum vandræðum. Hin tónhneigða kvikmyndastjarna þarf nú í upphafi 21. aldar að dragnast með það orðspor að vera annað hvort tímaskekkja eða, það sem er verra, að vera að reyna að öðlast óverðskuldaða frægð á fölsuðum VIP passa. Þetta hafa Billy Bob Thornton, Keanu Reeves og Kevin Bacon þurft að þola. Í þeirra hóp fellur einnig Juliette Lewis sem söng með hljómsveitinni The Licks í Hafnarhúsinu fyrir tæpri viku síðan.
Lesa áfram »