
Á meðan Íslendingar flestir þrá það yfirleitt heitast að koma sér burt úr kuldanum og myrkrinu — eitthvað suður á bóginn — hefur mér alltaf fundist eitthvað ‘eksótískt’ og lokkandi við þá staði jarðkringlunnar sem búa yfir enn meiri kulda og enn svartara myrkri en gamla frónið. Ef þannig er ástatt fyrir manni er Tromsø staðurinn. Hér virðist allt vera ‘nyrst’; nyrsta bruggverksmiðjan, nyrsti Burger King, og einhvertíma í fyrndinni var hér líka nyrsta kráin þar sem áhafnir íshafsskútanna yljuðu sér yfir síðustu krúsinni áður en ýtt var úr vör.
Lesa áfram »