
Námsskipan í sagnfræðiskor hefur staðið að mestu óhögguð síðan henni var komið á fyrir um 30 árum. Margt hefur breyst síðan innan og utan sagnfræðinnar sem kallar á endurskoðun námsins. Gífurlegar breytingar hafa orðið í fræðigreininni sjálfri á alþjóðavísu, m.a. eru viðfangsefnin orðin miklu fjölbreyttari og landfræðilegur sjóndeildarhringur hefur víkkað. Í mörgum löndum hefur vegur alþjóðlegrar sögu aukist og samþætting þjóðarsögu og alþjóðlegrar sögu orðin miklu algengari en áður var.
Lesa áfram »Í dag var í stofu 101 í Odda haldinn kynningar- og umræðufundar um nýja námsskipan til BA-prófs í sagnfræði við Háskóla Íslands sem nú er í undirbúningi.
Frummælendur voru Sveinbjörn Rafnsson, prófessor, Guðmundur Jónsson, prófessor, Páll Björnsson, lektor við Háskólann á Akureyri, Hrafnkell Lárusson, MA-nemi í sagnfræði og Jóhann Hjalti Þorsteinsson, BA-nemi í sagnfræði.
Hugsandi mun helga þessa viku þessum kynningarfundi. Í dag birtir Hugsandi samantekt Guðmundar Jónssonar á fyrirhuguðum breytingum. Næstu daga væntum við svo að geta birt framsöguerindi þeirra Páls, Hrafnkels og Jóhanns Hjalta.