
Árið 1990 vann Frederik L. Schodt, einn helsti sérfræðingur Vesturlanda í manga, að rannsóknum á bókasafni Kaliforníuháskóla. Þar rakst hann á látlausa bók sem reyndist vera teiknimyndasaga í 52 þáttum. Henry Kiyama nokkur var titlaður höfundur verksins. Hann fæddist sem Yoshitaka Kiyama árið 1885, var sonur kráareigenda í litlu þorpi og tilheyrði því eins konar millistétt. Árið 1904, aðeins 19 ára að aldri, gerði Kiyama sér lítið fyrir og flutti til San Francisco til að stunda myndlistarnám.
Teiknimyndasagan sem Schodt uppgötvaði fyrir tilviljun heitir The Four Immigrants Manga. Hún rekur sögu fjögurra japanskra innflytjenda, Henry, Charlie, Fred og Frank, í San Francisco á árunum 1904-1924.