Greinar frá deginum 14th February, 2006

þriðjudagur, 14. feb 2006

Valentínusardagurinn: forboðnar giftingar og súkkulaðibangsar

Valentínusardagurinn fellur ár hvert á 14. febrúar og er í vestrænu samfélagi algengt að elskendur og aðrir tjái ást sína hvor öðrum á þessum degi. Áður en hann var kenndur við Valentínus var þessi dagur haldinn til heiðurs rómverska frjósemisguðinum Lupercus og var í þá daga slátrað geit og drukkið vín auk þess sem menn hlupu um bæinn útataðir í blóði. Eftir að þáverandi keisari Rómar hafði bannað hjónabönd, þar sem hann komst að þeirri niðurstöðu að einhleypir karlmenn væru betri hermenn, var dagurinn eignaður Valentínusi, presti sem var hálshöggvinn þennan dag fyrir að gefa saman ung pör sem mátti ekki gefa saman, eða svo segir sagan.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN