Greinar frá deginum 16th February, 2006

fimmtudagur, 16. feb 2006

Heilsusálfræði í City University í London: Tilviljanakennd ákvörðun um mastersnám

City University of London

Heilsusálfræði er undirgrein í sálfræði. Hún snýst um að beita sálfræðikenningum, -aðferðum og -rannsóknum við forvarnir, til að viðhalda góðri heilsu, við greiningu sálrænna þátta líkamlegra sjúkdóma og fatlana, við þróun umbóta í heilbrigðiskerfinu og við mótun heilbrigðisstefnu. Heilsusálfræði í City viðhefur svokallaða “krítíska“ áherslu sem felst í endurskoðaðri stöðu greinarinnar. Spurt er spurninga á borð við: hvort rétt sé að líta á heilsusálfræðina sem undirgrein; og hvort nota eigi sömu kenningar og í almennri sálfræði? Ennfremur: hvað er heilsa; og hvernig er best að skilgreina hana? Er rétt aðskilja sál og líkama og er rétt að læknar meðhöndli eitt en sálfræðingar og geðlæknar annað?

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN