
Kvenna- og kynjarannsóknir hafa á síðastliðnum áratugum rutt sér til rúms innan hug- og félagsvísinda um allan heim. Fornleifafræðin er þar ekki undanskilin og hafa nýjar, gagnrýnar áherslur í rannsóknum bæði orðið til þess að auðga þekkingu á flóknum samfélögum fortíðar og ekki síður á stöðu rannsakandans í nútímanum. Fornleifarannsóknir með kynjafræðilegum áherslum hafa þó ekki verið stundaðar hér á landi sem neinu nemur og stendur íslensk fornleifafræði langt að baki fornleifafræði í nágrannalöndunum hvað þetta varðar.
Lesa áfram »