
Amnesty International [hefur] aflað fjölmargra vitnisburða um mannréttindabrot gegn „framsalsföngum“. Gögn samtakanna benda til þess að pyndingar séu viðhafðar og varðhaldinu sé ætlað að valda hámarks vanlíðan. Fangarnir séu hettuklæddir, einangraðir, hlekkjaðir og áreittir með hljóðum. Þessar aðferðir skaða sjón, heyrn og lyktarskyn, valda hugsanaruglingi og langvinnri sálrænni og líkamlegri þjáningu.
Lesa áfram »