Greinar frá deginum 21st March, 2006

þriðjudagur, 21. mar 2006

Sjálfhverfan kvödd

Subcult Thai

Hugarfarsleg sjálfhverfni — það að láta orð sín og verk nær eingöngu snúast um sjálfan sig og reyna að sveigja heiminn að eigin persónu í stað þess að víkka skilning sinn — er á undanhaldi enda þreytandi, einhæf og innantóm. Sjálfhverfnin hefur þó verið sterk og nokkuð áberandi í íslensku menningarlífi og víðar undangengin ár. Tilhneigingin til að varpa ljósi á eigin persónu hefur t.d. orðið höfuðeinkenni margra sem skrifa eða tjá sig í sjónvarpi og útvarpi. Hvort sem er á sviði dægurmenningar, bókmennta eða fræða hefur ekki þurft að leita lengi að persónum sem eru tilbúnar að leggja töluvert á sig til þess að halda athygli á sjálfum sér, athyglinnar vegna… Það er vís vegur til andlegrar stöðnunar að umgangast einlitan hóp fólks. Gildir þá einu hvort hópurinn er togarasjómenn, FM-hnakkar eða fræðilega þenkjandi kaffihúsarottur í Hundrað og einum, svo tilviljunarkennd dæmi séu tekin.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN