Sumum auglýsingum tekst betur en öðrum að fanga athygli neytenda. Sumar herferðir eru svo góðar að þeir sem sjá eða heyra auglýsingarnar muna eftir þeim löngu eftir að herferðunum lýkur. Í mínum huga er ein minnisstæðasta auglýsingaherferð undanfarinna ára auglýsing með tveimur Íslendingum sem lofa allt íslenskt á bjagaðri ensku: „Do you know Vala Flosa?“ Í þessari herferð útskýra mennirnir fyrir forviða útlendingum hvað það er nákvæmlega sem gerir Ísland betra en önnur lönd. Ein auglýsing er mér minnisstæðari en aðrar, hún endar einhvern veginn svona: „… the Vikings they went over there and they took all the beautiful women and we made babies with them — that’s why all the beautiful women are in Iceland and all the ugly women are in England.“
Lesa áfram »