Greinar frá deginum 30th March, 2006

fimmtudagur, 30. mar 2006

Mega samkynhneigðir ekki eignast börn? — Um rök gegn fjölskyldulífi homma og lesbía

Þó réttindabarátta samkynhneigðra hafi fært íslenskum hommum og lesbíum aukin lagaréttindi á óvenju skömmum tíma, miðað við þróun í nágrannaríkjunum, sæta samkynhneigðir enn lagalegu misrétti. Það sem svíður einna mest er skortur á lagalegum lausnum á barnleysi, en eðli málsins samkvæmt eignast samkynhneigð pör ekki saman börn upp á gamla mátann. Staðfest samvist samkynhneigðra jafngildir hjónabandi gagnkynhneigðra að undanskilinni kirkjuvígslu og aðgangi að tæknifrjóvgunum og ættleiðingum.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN