Greinar frá mánuðinum April, 2006

fimmtudagur, 27. apr 2006

Fíkn í frelsi

Fólk í lægstu stéttum Brasilíu á fáa möguleika á því að vinna sig upp og öðlast betri lífskjör. Það er ekki auðvelt að ímynda sér vonleysið sem hlýtur að einkenna þess konar líf. Börn og unglingar í fátækrahverfunum hafa þó einn valkost. Sá valkostur er að hefja sjálfstætt líf á götum sem eru fullar spennu og ævintýrum. Með því að reyna að koma í veg fyrir götulíf barna er eini valkostur þeirra til að breyta lífi sínu tekinn af þeim.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 25. apr 2006

Stefnuskrá um almenningssamgöngur

strætó

Nú fer að líða að sveitastjórnarkosningum á Íslandi og líkt og venjulega er við því að búast að rykið verði dustað af gömlum innantómum slagorðum og reynt að hnýta í pólitíska andstæðinga. Eini merkjanlegi munurinn frá síðustu kosningabaráttu verður þó að öllum líkindum liturinn á kjólum og hálsbindum frambjóðenda á kosningamyndunum. Til að leggja sitt af mörkum til málefnalegrar umræðu lagði undirritaður fyrr á þessu ári fram stefnuskrá um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu til frjálsra afnota fyrir frambjóðendur allra flokka.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 20. apr 2006

Rómantík hins daglega lífs

Sumarljós

Lífið virðist stundum fara í allar áttir en endar svo iðulega í miðri setningu. Þau orð má finna í inngangskafla bókarinnar Sumarljós og svo kemur nóttin eftir Jón Kalman Stefánsson. En hvað merkja þau? Því reynir Arngrímur Vídalín Stefánsson að svara.

Lesa áfram »

mánudagur, 17. apr 2006

Hinn eilífi lík-ami

Von Hagens skilur hattinn sinn aldrei við sig!

Síðasta áratuginn eða svo hefur all sérstæð sýning ferðast um heiminn. Í augum sumra er hún afrakstur læknisfræðilegs afreks en aðrir líkja henni við fríksýningar P.T. Barnum. Eitt er þó víst og það er að að flestir þeir sem heimsækja líksýningu Gunther von Hagen koma út öllu fróðari um eigin innviði, í öllum mögulegum skilningi þess hugtaks. Unnur María Bergsveinsdóttir fjallar um dulmagn líksýninga og spyr hvort útlitskröfur nútímans hafi teygt sig út yfir hinstu mörk.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 11. apr 2006

Páskakveðja

Páskakanína

Hugsandi óskar lesendum sínum gleðilegra páska!

Næsta grein mun birtast þriðjudaginn 18. apríl.

Lesa áfram »

Klanið

Alltof oft hef ég orðið áheyrandi af því þegar dreifbýlisbúar ausa úr skálum fáfræði sinnar yfir því hvernig íbúar höfuðborgarsvæðisins séu (þeir eru auðvitað allir eins! Eða hvað?). Þetta gengur þó vitanlega á báða vegu. Sömu fáfræðina, með öfugum formerkjum, er fljótlegt að finna meðal íbúa höfuðborgarsvæðisins. Stimplanir eru aldrei langt undan. Alhæft er um tilbúna hópa sem samanstanda af einstaklingum sem næsta örugglega líta ekki á sjálfa sig sem hóp. Það er óþarft að fjölyrða um það hversu fráleitt það er að stimpla heilar þjóðir eða jafnvel íbúa heilla heimsálfa sem einsleita hjörð með sömu viðhorf og markmið.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 6. apr 2006

Af hverju ættleiðum við ekki börn frá Eþíópíu eða Grænlandi?

Munaðarleysingjar

Þegar við lesum um þekkta einstaklinga sem ættleiða börn frá fátækum löndum, þá gætum við freistast til þess að halda að það sé ekki flókið mál að ættleiða munaðarlaust barn erlendis frá. Við gætum haldið að það þyrfti ekki annað en hjartarými, húsrými og hóflegt magn af peningum til þess að bjóða foreldralausu barni sómasamlegt líf. En málið er því miður ekki svona einfalt.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 4. apr 2006

Lauslæti íslenskra kvenna

Flugfreyja

Vaxandi umfjöllun hefur átt sér stað um ímynd fegurðar íslenskra kvenna í erlendum fjölmiðlum á seinustu árum og virðist sem staðalmynd íslenskra kvenna komi fram sem fallegar ljóshærðar stúlkur sem eru partíglaðar og lauslátar. Umræða hefur til dæmis átt sér stað í erlendum spjallþáttum og fjölmiðlum. Flugfélög hafa verið að kynna helgarferðir til Íslands sem tækifæri fyrir karlmenn að komast yfir fallegar íslenskar stúlkur. Íslenska konan hefur meðal annars komið fram í leiknum sjónvarpsþáttum. Einnig er það algengt að þegar þekktir leikarar koma til Íslands sé þeim boðið upp á félagsskap íslenskra fegurðardísa.

Ekki er hægt að segja til um að íslenskar konur séu almennt lauslátari og fallegri en aðrar konur, en hins vegar er ef til vill hægt að segja til um hvernig ímynd íslenskra kvenna í erlendum fjölmiðlum kemur fram, út frá þessari umfjöllun.

Lesa áfram »

ISSN