
Því hefur mannréttindaástandið í Íran, sem lengi hefur verið mjög ábótavant, ekki farið batnandi eins og ársskýrsla Amnesty International frá í fyrra sýnir. Nokkur fjöldi samviskufanga má enn dúsa í fangelsum landsins eftir ósanngjörn réttarhöld á undangengnum árum. Nokkur fjöldi fólks til viðbótar hefur verið handtekinn fyrir skrif í blöð eða á Internetið sem hafa þótt “ógna þjóðaröryggi.“ Árið 2004 voru 159 manns tekin af lífi í landinu, þar af einn einstaklingur undir lögaldri. Hún hét Atefeh Rajabi, sextán ára, og var hengd þann 15. ágúst fyrir hórdóm eftir ósanngjörn réttarhöld og opinbera niðurlægingu, þrátt fyrir efasemdir um að hún gengi heil til skógar.
Lesa áfram »