
Er hið illa auga hætturlegra erlendis en hér heima á Fróni spurði Eiríkur Valdimarsson í síðustu viku og rakti uppruna hjátrúarinnar og eðli hennar. Í seinni hluta greinar sinnar kynnir hann afleiðingar þær sem hlotist geta af því að vera litinn illu auga og varnarhætti þar í mót.
Lesa áfram »
„Að gefa einhverjum illt auga“ er stundum sagt um það þegar einhver gerir eitthvað á hlut annars. Merkingin sem við drögum af þessari athöfn er oftast bundin við hugsanir, þ.e. illar hugsanir á meðan hið illa auga er framreitt, en alls ekki að einhver yfirnáttúrulegur kraftur birtist með blossum og blóðhlaupi og með einhverjum hætti „hlýði“ hinu illa auga sem við gefum. Þannig er ekki að hlutunum staðið hér á Íslandi að minnsta kosti. En í útlöndum? Er til eitthvað kröftugra og hættulegra augnsamband þar, heldur en gengur og gerist hér á Fróni?
Lesa áfram »
Rétt eins og við hefðbundna trúariðkun er fólk mis ákaft í dýrkun sinni á fótbolta. Á meðan sumir rétt gjóa augum á fótboltaleiki í sjónvarpi og grípa stöku fréttir af íþróttinni, jafnvel þó áhugi sé vissulega til staðar, leggja aðrir stórar hluta tekna sinna, líf sitt og sál í köllun sína gagnvart fótboltanum. Þeir svífa skýjum ofar þegar vel gengur en síga niður í svartnættisdrunga þegar gefur á bátinn hjá Liðinu. Eru óvinnufærir sökum depurðar ef illa hefur farið eða komast ekki til vinnu vegna timburmanna hafi sigur unnist og tækifæri gefist til að fagna.
Lesa áfram »
Undanfarin ár, jafnvel áratugi, hefur kannabis verið afar umdeilt. Misjafnar sögur eru til um áhrif kannabis á mannskepnuna og er því fróðlegt að skoða rannsóknir sem hinir ýmsu fræðimenn hafa framkvæmt til að komast að sannleikanum um efnið. Hér á eftir verður niðurstöðum nokkurra þessara rannsókna lýst og athugað hvort einhver botn fáist í hið umdeilda mál sem kannabis er.
Lesa áfram »