
Rétt eins og við hefðbundna trúariðkun er fólk mis ákaft í dýrkun sinni á fótbolta. Á meðan sumir rétt gjóa augum á fótboltaleiki í sjónvarpi og grípa stöku fréttir af íþróttinni, jafnvel þó áhugi sé vissulega til staðar, leggja aðrir stórar hluta tekna sinna, líf sitt og sál í köllun sína gagnvart fótboltanum. Þeir svífa skýjum ofar þegar vel gengur en síga niður í svartnættisdrunga þegar gefur á bátinn hjá Liðinu. Eru óvinnufærir sökum depurðar ef illa hefur farið eða komast ekki til vinnu vegna timburmanna hafi sigur unnist og tækifæri gefist til að fagna.
Lesa áfram »