
„Að gefa einhverjum illt auga“ er stundum sagt um það þegar einhver gerir eitthvað á hlut annars. Merkingin sem við drögum af þessari athöfn er oftast bundin við hugsanir, þ.e. illar hugsanir á meðan hið illa auga er framreitt, en alls ekki að einhver yfirnáttúrulegur kraftur birtist með blossum og blóðhlaupi og með einhverjum hætti „hlýði“ hinu illa auga sem við gefum. Þannig er ekki að hlutunum staðið hér á Íslandi að minnsta kosti. En í útlöndum? Er til eitthvað kröftugra og hættulegra augnsamband þar, heldur en gengur og gerist hér á Fróni?
Lesa áfram »