
Á undanförnum árum hefur hátt verið talað um að árangur drengja í skólum sé mun verri en árangur stúlkna. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson segir í bók sinni Karlmennska og jafnréttisuppeldi að honum finnist furðulega auðvelt að fá hljómgrunn fyrir gagnrýni á jafnréttisstarf sem hefur að leiðarljósi að bæta stöðu stúlkna og kvenna en að jafnréttisbarátta fyrir hönd drengja eigi sér mjög sterkt bakland. Nákvæmlega þessi hugsun læddist að mér þegar ég sat fyrirlestur hans í Háskóla Íslands í fyrra en þá var troðfullur salur af áhugasömum hlustendum um stöðu drengja í grunnskólum.
Lesa áfram »
Þegar ég las bókina We Are Iran: The Persian Blogs eftir íranska verkfræðinginn Nasrin Alavi kom mér á óvart að samkvæmt henni er persneska fjórða mest notaða tungumálið í svokölluðum bloggheimi internetsins. En eftir að hafa lokið lestri þeirrar bókar kom í ljós að það er ekkert svo skrítið í ljósi félagslegra aðstæðna í Íran nútímans.
Lesa áfram »
Ýmsir fræðimenn vilja þar með halda því fram að eitt aðalhlutverk mannfræðinga sé að skrifa, og velta þannig fram spurningunni um hvers eðlis mannfræðin sé. Er hún skáldskapur eða vísindi? Er raunhæft að ætla sér að nálgast tiltekið samfélag á forsendum þeirra sem búa þar, eða er rannsóknin alltaf háð forsendum, viðhorfum og menningu rannsakandans? Er hægt að alhæfa um samfélög, nálgast tiltekinn kjarna eða sannleika, eða er hver rannsókn einstök upplifun rannsakandans á samfélaginu? Getur etnógrafían verið annað en þjóðhverf, eða öllu heldur sjálfhverf lýsing einstaklings á umhverfi sem ekki er hans eigið?
Lesa áfram »
Hvað eiga pönk tónlist og stjórnmál sameiginlegt? Kannski ekki mikið á yfirborðinu, en pönk tónlist hefur oft og lengi verið notuð til að koma skoðunum á framfæri. Einn af helstu boðberum vinstri aflsins innan pönksins í dag er hljómsveitin Anti-Flag. Hér verður aðeins sagt frá sögu hljómsveitarinnar og skoðunum.
Lesa áfram »
Í hrörlegu stálgrindarhúsi sem áður hýsti fiskbræðslu hangir speglakúla í loftinu. Þetta aldna atvinnuhúsnæði er staðsett í jaðri eins af minnstu þorpum landsins — Bakkagerðisþorpi á Borgarfirði eystri. Kúlan hefur hangið í lofti skemmunnar um allnokkra hríð. Hún var komin á sinn stað í rjáfrinu nokkuð löngu áður en einhverjum datt í hug að halda tónleika í þessari skemmu. Það hefur útheimt ríkt ímyndunarafl að láta sér detta í hug að breyta þessum húsakosti í tónleikasal.
Lesa áfram »