
Á undanförnum árum hefur hátt verið talað um að árangur drengja í skólum sé mun verri en árangur stúlkna. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson segir í bók sinni Karlmennska og jafnréttisuppeldi að honum finnist furðulega auðvelt að fá hljómgrunn fyrir gagnrýni á jafnréttisstarf sem hefur að leiðarljósi að bæta stöðu stúlkna og kvenna en að jafnréttisbarátta fyrir hönd drengja eigi sér mjög sterkt bakland. Nákvæmlega þessi hugsun læddist að mér þegar ég sat fyrirlestur hans í Háskóla Íslands í fyrra en þá var troðfullur salur af áhugasömum hlustendum um stöðu drengja í grunnskólum.
Lesa áfram »