
Hvaða hlutar stafrænnar heimildar tilheyra kjarna hennar og hverjir miðlunarmátanum? Þegar við fáumst við hefðbundnar heimildir á borð við segulbandsupptöku af viðtali eða texta vélritaðan á pappír tökum við samstundis eftir því ef tekið hefur verið yfir hluta af upptökunni eða strikað yfir stöku setningar. Hvort krotað hafi verið á spássíurnar. Miðillinn er þannig samofinn innihaldinu. Þessi eining tilheyrir hinsvegar ekki hinni stafrænu nátttúru.
Lesa áfram »