
Í dag eru fangarnir í Guantánamo yfir 400 talsins, þar af hefur meirihlutinn þurft að dúsa í búrum sínum í fjögur ár og níu mánuði, eða síðan Bandaríkin og Bretland gerðu innrás í Afghanistan undir árslok 2001. Markaði innrás þessi fyrsta bardagann í hinu mótsagnakennda „stríði gegn hryðjuverkum“. Ég segi „mótsagnakennda“ vegna þess að yfirlýst markmið stríðsins eru að standa vörð um frelsi, öryggi og mannréttindi, en leitast er við að ná þeim markmiðum með því að svipta aðra frelsi, grafa undan öryggi þeirra og brjóta á mannréttindum þeirra.
Lesa áfram »