
Á hverjum degi vöknum við og tökum ákvörðun um hvaða fötum við ætlum að vera í þann daginn. Oft skiptum við líka um föt mörgum sinnum yfir daginn. Hvort sem sú ákvörðun er meðvituð eða ekki þá hefur hún gífulega mikla þýðingu fyrir ímynd okkar. Elizabeth Rouse skrifaði bókina Understanding Fashion, þar veltur hún fyrir sér afhverju við klæðum okkur í föt og hvað hefur áhrif á hvaða föt við klæðum okkur í. Þó svo að Elizabeth hafi ekki verið að gera neinar tímamóta uppgvötanir við leit að svari spurningar sinnar, er áhugavert að velta þeim hversdaglega hlut eins og fötum aðeins fyrir sér og skoða hvers vegna þau skipa eins stóran sess í líf okkar og raun er.
Lesa áfram »