Greinar frá deginum 24th October, 2006

þriðjudagur, 24. okt 2006

Trúboð í Nýju Gíneu: Böl eða bót?

Páfinn í Nýju Gíneu

Kristni hefur verið opinber trú Nýju Gíneu frá því að landið hlaut sjálfstæði árið 1975. Það er áhugavert að samkvæmt tölum frá 1980 höfðu nær allir játast kristni í Nýju Gíneu og um 1985 var landið orðið trúaðra (tölfræðilega séð) heldur en Ástralía, Bretland og Þýskaland, en þaðan komu einmitt flestir trúboðanna sem starfað hafa á svæðinu. Margir mannfræðingar sem stundað hafa rannsóknir í Melanesíu segja það ómögulegt að skilja melanesíska trú innfæddra frá afganginum af félagskerfi þeirra og menningu. Því má segja að þó svo nær allir íbúar Nýju Gíneu hafi tekið upp nýja trú, hverfi hin seint algjörlega úr lífi þeirra.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN