Greinar frá mánuðinum November, 2006

fimmtudagur, 30. nóv 2006

Að hefja nám í borg Absalons

Stytta af Absalon

Í sumar náði ég loksins þeim merka áfanga að útskrifast með B.Sc. gráðu í rafmagnsverkfræði eftir smá brölt í Háskóla Íslands. Verkfræðin er þó þess eðlis að til fá réttindi þarf maður að klára meistaranám. Eftir útskrift var því ekkert annað í stöðunni en að ganga strax í það mál og halda áfram í skóla í tvö ár í viðbót. Smá reynsla af meistaranáminu í HÍ var nóg til að sannfæra þennan nema um að meistaragráða frá skólanum væri liklega ekkert voðalega merkilegur pappír, alla vega ekki af gæðum námsins að dæma. Því var stefnan sett á kóngsins Kaupmannahöfn.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 28. nóv 2006

Bleikt og blátt

Sex and the City

Hver vill búa í heimi þar sem konur geta ekki keypt sér þá skó sem tærnar girnast eða lagt í stæði með listfengum hætti eftir eigin nefi eða fengið að stjórna heiminum?

Þessi spurning var lögð fram í vikuritinu Birtu ekki alls fyrir löngu. Ég geri ráð fyrir því að hún sé sett fram í hálfkæringi og jafnvel má greina í henni eilítinn kaldhæðnisbrodd ef vel er að gáð. Hins vegar má líka sjá í henni mjög útbreidda skoðun á því hvernig litið er á hæfileika, eða hæfileikaskort, kynjanna á vissum sviðum. Í nánast hverju einasta tímariti og mörgum dagblöðum má sjá misgáfulegar alhæfingar um kynin.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 23. nóv 2006

Ofvirk eldfjöll og einangraðir erasmusar: Dvöl á eyju í Indlandshafi

La Réunion

La Réunion er eyja í vestanverðu Indlandshafi, austan við Madagaskar, í grennd við Máritíus. Eyjan sjálf er ekki stærri en Suðurnesin, en þar búa yfir 750.000 eyjaskeggjar af fjölbreyttum uppruna. Ég hef nú dvalist á La Réunion sem Erasmusnemi í mannfræði í þrjá mánuði. Ég hef nú dvalist á La Réunion sem Erasmusnemi í mannfræði í þrjá mánuði. Eyjan er sökum fjölmenningar sinnar afar áhugaverð í mannfræðilegum skilningi. Auk þess státar hún af ofvirku eldfjalli, mikilfenglegum fjallgörðum, marglitum blómum, heitum sjó og að sjálfsögðu sumari og sól yfir svartasta myrkrið heima á okkar ástkæra Íslandi.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 21. nóv 2006

Réttlæti í lýðræðislegu samfélagi

Parþenon hof í Aþenu

Í Ríkinu eftir Platón fer fram samræða á milli Sókratesar og sófustans Þrasýmakkosar. Þeir tveir rökræða um hvernig best væri að stjórna og hver tilgangur yfirvaldsins sé í raun. Hér verður reynt að fara skynsamlega ofan í rök þeirra með það til hliðsjónar að lýðræði hefur ekki breyst mikið á 2500 árum.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 16. nóv 2006

Sófakynslóðin

Aðgerð við styttu Leifs Eiríkssonar

„Við erum sófakynslóð, sófalandið. Við sitjum bara í sófanum og erum á móti hlutum en gerum ekki rassgat í því.“ Svo komst einn viðmælenda að orði í heimildarmyndinni Sófakynslóðin, Aktivismi á Íslandi sem verður sýnd næsta laugardag. En erum við jafn óvirk og aðgerðalaus og við virðumst oft vera? … Finnst Íslendingum þrátt fyrir allt bara hallærislegt að standa í rigningunni og rokinu með skilti og kyrja slagorð?

Lesa áfram »

þriðjudagur, 14. nóv 2006

Stíflur, þjóðríki og pólitík í Afríku

Cahora Bassa-stíflan

Ef marka má hugmyndafræðina sem umlykur stíflur og vatnsaflsvirkjanir er svarið skýrt. Náttúran er einskis virði nema mannshöndin nýti hana. Hér á Íslandi er auðvelt að réttlæta nýtingu náttúruauðlinda þegar um er að ræða fáfarin svæði fjarri mannabyggðum. En í Afríku lifir mikill fjöldi fólks á frjósömum jarðvegi árfarvega og þar hefur komið í ljós að „mannshöndin“ sem hér um ræðir tilheyrir ekki hverjum sem er. Þar hefur hún gjarnan tilheyrt ríkisstjórnum sem hafa pólitísk markmið að leiðarljósi og hampa stíflum sem táknum um mátt þjóðríkisins.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 9. nóv 2006

Einsleit mótmæli

Gamalt fjárhús

En eins og rann upp fyrir mér við heimildaöflunina er staðreyndin hins vegar sú að svæðið norðan Vatnajökuls var hvorki óséð eða ósnortið (þótt vissulega væri það náttúruperla) áður en framkvæmdir þar hófust. Menn hafa um aldaraðir reynt að nýta þetta land eins og annað, gefið því nöfn og lagt um það leiðir… Menn hafa mótað landið og það hefur mótað mennina. Í vinnu við áðurnefnda heimildaöflun tók ég viðtöl við fólk sem fætt er og uppalið á þessum slóðum. Fyrir mörgum þeirra er þetta land meira en ósnortin náttúra. Það er líka landslag minninga og sögu.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 7. nóv 2006

Hvað er IceMUN?

Icemun fundur

Undirbúningur þátttakenda fyrir IceMUN-ráðstefnu felst í að kynna sér bakgrunn landsins sem þátttakendum er úthlutað; hver sé afstaða þess innan Öryggisráðsins; við hvaða ríki landið sé í samstarfi; og fleira sem hjálpað getur við að átta sig á því hlutverki sem þátttakendur verða að fylgja. Lykilatriði er að þátttakendur séu samkvæmir sínu landi og fylgi stefnu þess án þess að láta persónulega afstöðu skína í gegn. Það getur á tíðum reynst erfitt. Að þessu sinni átti það sérstaklega við um fulltrúa Norður-Kóreu sem stóðu sig prýðilega og voru mjög sannfærandi sem umboðsmenn foringjans, Kim Jong-il.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 2. nóv 2006

Máttur er mennt, - og stundum froskur, í Gvatemala: Af furðulegum vandamálum, litlum og stórum, í framandi landi

Börn í spilasal í Gvatemala. Ljósmyndari Bryndís Björgvinsdóttir.

Eftir langt ferðalag komst ég loksins á klósett sem staðsett var í kofa úti á miðju túni. Af einhverri ástæðu hafa landsmenn mjög sjaldan lok á salernum sínum og þegar ég skimaði ofan í klósettið þá sá ég einhverja hreyfingu, ég leit betur ofan í innviði klósettsins og feitur gulbrúnn froskur glápti á móti. Er það nú vandamál! Á maður að sturta honum niður? Eða… bara láta sem hann sé ekki þarna? Á kannski að grípa hann og skutla honum upp úr? Hvað er málið með fáránlegheitin?

Lesa áfram »

ISSN