Greinar frá mánuðinum December, 2006

mánudagur, 25. des 2006

Gleðileg jól!

Jólatré

Hugsandi óskar lesendum sínum og greinahöfundum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Ritstjórn er í jólafríi sem stendur. Næsta grein á Hugsandi mun birtast þriðjudaginn 9. janúar 2007.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 21. des 2006

„Ertu byrjuð að baka?“

Piparkökukarl

Hvenær er smákaka smákaka og hvenær er hún birtingarmynd menningarstrauma og gildismats? Sólveig Ólafsdóttir rekur smákökuslóð íslenskra húsmæðra frá eldiviðarkyntum ofnum í Leirársveit inn í tæknilega fullkomin eldhús nútímahúsmæðra. Hver veit nema að smákökubaksturshefð okkar Íslendinga eigi eftir að rata á menningarerfðaskrá Unesco? Kannski eiga Íslendingar eftir að koma á fót jólasmákökuráði, sem verndar smákökurnar fyrir óæskilegum breytingum á sama hátt og þjóðbúningaráðið passar upp á varðveita þjóðbúninginn okkar?

Lesa áfram »

þriðjudagur, 19. des 2006

Tár, bros og takkaskór

Lógó St. Styrmis

„Ég held að staðalmyndin sé mjög rík að samkynhneigðir menn taki ekki þátt í íþróttastarfi. En þeir eru náttúrlega alls staðar. Við búum bara ekki í samfélagi þar sem þeir geta auðveldlega komið út úr skápnum sem íþróttamenn og hommar … Hommar og fótbolti virðast ekki fara saman í hugum fólks“ segir Hannes Páll Pálsson um Strákafélagið Styrmi, eina íþróttafélag landsins sem er eingöngu skipað samkynhneigðum karlmönnum.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 14. des 2006

Viðheldur aðalnámskrá grunnskóla félagslegum mismun?

Aðalnámsskrá - forsíða

Þegar persónulegar áherslur fyrrverandi menntamálaráðherra, eins og þær koma fram í ræðu og riti, eru bornar saman við texta aðalnámskrár má sjá að aðalnámskráin fylgir áherslum menntamálaráðherra og er rituð án nokkurrar skipulegrar útfærðrar menntunarheimspeki. Áherslan á hinn hefðbundna skóla er yfirgnæfandi með tilheyrandi afleiðingum fyrir þá hópa sem ekki tilheyra þeirri fyrimyndarfjölskyldu sem aðalnámskráin er skrifuð til.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 12. des 2006

Hvert fór framtíðin?

Í upphafi tölvualdar var sú trú algeng að tæknin myndi bylta námsumhverfinu, að hún myndi gera okkur kleyft að læra meira, hraðar, ódýrar. Við myndum drekka í okkur heimsbókmenntirnar meðan við svæfum og vera geisluð milli frægra listasafna á sekúndubroti.

Reyndin hefur hinsvegar orðið sú að líkt eins og við fljúgum ekki milli heimilis og vinnustaðar í glærum plastkúlum né heldur klæðumst við silfurlitum samfestingum, þá hefur ekki heldur á síðustu 3 áratugum orðið nein grundvallar breyting á því hvernig fróðleik er miðlað. Og þá hlýtur kona að spyrja sig, hvert fór framtíðin?

Lesa áfram »

fimmtudagur, 7. des 2006

Klíómetrían og einangrun hagsögunnar í Bandaríkjunum

Douglass North

Ástæður akademísks heimilsleysis hagsögunar er að finna bæði innan hagsögunnar og móðurgreina hennar. Þessi sorglegu örlög sýna hversu varhugavert það getur verið fyrir undirgreinar sagnfræðinnar að reiða sig um of á aðferðafræði og tungutak sem er upprunnið í öðrum fræðigreinum, því helsta ástæða þess að hagsagan hefur orðið útundan innan sagnfræðinnar er að hún hefur tileinkað sér tungumál, sem er illskiljanlegt öðrum sagnfræðingum eða þeim sem ekki eru “innvígðir“ í leyndardóma tölfræði og nýklassískrar hagfræði.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 5. des 2006

... og einn talandi páfugl á grein! Hugleiðingar um jólin og jólalögin

Upplýst jólatré

Þegar þessi orð eru skrifuð er flóðbylgja jólanna orðin mjög vaxandi og hin alræmdu jólalög einnig farin að bylja á manni. Úr útvarpstækjum vinnustaða, bíla, heimila og verslana. Svona rétt til að fylla upp á milli auglýsinganna. Fyrir suma eru jólalögin kærkomin, þó ekki væri nema fyrir þá sök að örlítið lengra verður á milli geðveikislegra auglýsinganna. Aðrir ærast og fá velgju í magann og suð fyrir eyrun.

Lesa áfram »

ISSN