Greinar frá mánuðinum January, 2007

þriðjudagur, 30. jan 2007

Hvað vitum við um mannsheilann?

Mannsheilinn - sneiðmynd

Reynsluþekking byggir á þeirri hugmynd að til þess að skynja umhverfið, þá verði heilinn sífellt að spá fyrir um þær upplýsingar sem skynfærin veita honum í stað þess að skrá einungis þær upplýsingar sem honum berast. Til dæmis, ef við sjáum glitta í stuðara á bíl bak við hús, þá gerum við ráð fyrir því að við okkur blasi heill bíll ef við göngum fyrir húshornið.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 25. jan 2007

Brúðkaup á Íslandi í aldanna rás - 2. hluti

Brúðkaup

Það að tvær manneskjur ákveði að ganga saman lífsins veg hefur líklega tíðkast frá árdögum mannsins. Slíkur sáttmáli tveggja manneskja er stór hluti af menningu okkar. Í þessari grein, sem er annar hluti af þremur, verður saga brúðkaupa á Íslandi rakin frá Þjóðveldisöld fram til dagsins í dag og skoðað hvernig brúðkaupsveislur og brúðkaupssiðir hafa breyst með tímanum.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 23. jan 2007

Brúðkaup á Íslandi í aldanna rás - 1. hluti

Víkingabrúðkaup

Það að tvær manneskjur ákveði að ganga saman lífsins veg hefur líklega tíðkast frá árdögum mannsins. Slíkur sáttmáli tveggja manneskja er stór hluti af menningu okkar. Í þessari grein, sem er fyrsta af þremur, verður saga brúðkaupa á Íslandi rakin frá Þjóðveldisöld fram til dagsins í dag og skoðað hvernig brúðkaupsveislur og brúðkaupssiðir hafa breyst með tímanum.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 18. jan 2007

Kynbundið ofbeldi

Hnípin kona í vanda

Undanfarin ár hefur umræða um klám og klámvæðingu haft áhrif á viðhorf fólks til kynlífs og kynlífsathafna. Ef marka má þessa umræðu þá eru fjölmennur hópur hér á landi sem sækist í klám, vændi og börn til þess að fá hneigðum sínum fullnægt. Hópur sem virðist hafa greiðan aðgang að þessum varningi. Hvort sem hann sé í formi myndbanda eða lifandi mannvera.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 16. jan 2007

Sjálfsvíg í sögulegu ljósi — II. hluti

Dauðaótti

Sterk tilfinning fyrir sálinni og útbreidd og sterk draugatrú voru hvort tveggja heiðnar leifar í íslenskri þjóðtrú. Því var trúað að allir gætu gengið aftur. Fastar venjur í umgengi við dauðvona fólk og lík hefur trúlega slegið á óttann um að viðkomandi gengi aftur og aukið þannig vonir um að sál hans væri hólpin. Auðmýkt gagnvart óumflýjanlegum dauða var álitin nauðsyn. Afturgöngutrúin var sterk þrátt fyrir kenningar kirkjunnar um lausn sálar og líkama. Skyndileg dauðsföll vegna slysa eða sjálfsvíga, þar sem hinn látni gat ekki eða vildi ekki iðrast, hafa því verið til þess fallin að auka ótta um að þeir einstaklingar sem þannig létu lífið gengju aftur og sæktu að eftirlifendum.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 11. jan 2007

„Heildsalamálin“

Krónan 1940

Verðlagsaðstæður á Íslandi í seinni heimstyrjöldinni kölluðu á úrræði sem bundin voru í lög og reglur í byrjun árs 1943. Verðbólga hafði geisað frá árinu 1940 með 26—31% hækkun á hverju ári. Verðbólgan stafaði af því að vöruframboð hélst ekki í hendur við aukinn kaupmátt almennings vegna takmarkana á innflutningi erlendis frá. Þetta varð til þess að kaupmenn gátu selt nánast hvað sem var og á verði sem var oft langt yfir leyfilegum mörkum. Kaupmáttaraukningin kom til af stórauknu fjárstreymi til landsins vegna hækkunar á útflutningsverðmæti sjávarútvegsins og vinnu á vegum breska og síðar bandaríska hernámsliðsins.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 9. jan 2007

Sjálfsvíg í sögulegu ljósi — I. hluti

Maður með ljá

Í frumkristni var viðhorfið til sjálfsvíga á flökti, jafnvel jákvætt vegna áhrifa frá Stóumönnum. Biblían er þögul um sjálfsvíg (þ.e. um verknaðinn sjálfan) þó greint sé frá tilvikum þar sem ævi manna lauk með því. Um sjálfsvíg er fjallað í Biblíunni sem hver önnur dauðsföll. Tilvikin eru ekki mörg og eiga það sammerkt að vera tilkomin vegna yfirvofandi eða orðinnar niðurlægingar einstaklings sem valdi dauðann fremur en að lifa í skömm… Kirkjan og guðfræðingar hennar hafa í gegnum tíðina mótað viðhorf hins kristna heims til sjálfsvíga… Álit kirkjuleiðtoga lituðu síðan lagasetningar og hvort tveggja hafði áhrif á viðhorf almennings og átti þannig sinn þátt í því að viðhalda skömm og sektarkennd hjá aðstandendum þeirra sem styttu sér aldur.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN