Greinar frá mánuðinum February, 2007

þriðjudagur, 27. feb 2007

Þróunin að listkerfi nútímans - Frá Platón til Kants

Tónlist í fornöld

Lengi vel var skáldskaparlistin talin sú listgrein er bæri höfuð og herðar yfir aðrar. Samkvæmt Platón og Aristóteles eru tónlist og dans ekki sjálfstæðar listgreinar heldur flokkast þær undir skáldskaparlist sem ljóðrænn og leikrænn þáttur skáldskapar. Fornaldarmenn litu almennt niður á þá sem unnu með höndunum, allar greinar sem kröfðust líkamlegrar áreynslu voru taldar óæðri hinum andlega efniviði. Menn gátu dáðst að verkum málara og annara sem fengust við gerð sjónlista en það var alls ekki eftirsóknarvert að vinna að slíkri list.

Lesa áfram »

föstudagur, 23. feb 2007

Sjálfsvíg í sögulegu ljósi — V. hluti

Dauðinn - málverk 2

Með hliðsjón af lögum og kristnum kenningum voru sjálfsvíg opinberlega fordæmd og almennt álitið að þeir sem þannig enduðu líf sitt færu fjandans til eftir dauðann, þar eð þeir brytu gegn vilja Guðs. Við þetta vaknar ákveðin spurning: Hvers vegna skrásettu íslenskir annálaritarar upplýsingar um sjálfsvíg? Flestir þeir sem skráðu annála voru ýmist hærra settir í íslensku samfélagi (t.d. sýslumenn eða prestar) eða störfuðu undir handarjaðri háttsettra manna, ýmist úr stétt veraldlegra og andlegra embættismanna.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 22. feb 2007

Sjálfsvíg í sögulegu ljósi — IV. hluti

Dauðinn - málverk

Umfjöllun um sjálfsvíg í annálum er í flestum tilfellum stutt. Lítur hinu knappa formi sem viðhaft er í þeim flestum og er því undir sömu sök selt og annað efni. Af 266 skráðum sjálfsvígum eru aðeins 89 sem fá umfjöllun sem er meira en tvær línur að lengd. Aðeins tíu tilvik fá tíu línur eða meira í umfjöllun. Lengst af þeim er frásögn Íslands Árbókar af sjálfsvígi Jóns Eiríkssonar konferensráðs.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 20. feb 2007

Skiptinám “á Paris”

París 8

Þegar ég mætti á staðinn fékk ég strax að finna fyrir frönsku skrifræði. Fyrstu tvær vikurnar mínar voru með eindæmum “skemmtilegar“ þar sem ég eyddi þeim aðallega í biðröð. Ég þurfti að gera hluti eins og að stofna bankareikning og skrá mig í kúrsa, sem ætti ekki að vera svo flókið, en það er bara ekkert grín að vera í Frakklandi og tala ekki frönsku! Alþjóðafulltrúinn í skólanum mínum talaði heldur ekki ensku þannig að ég sá fljótt fram á að ég þyrfti að læra frönsku og það hratt.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 15. feb 2007

Anna er dáin! Lengi lifi Anna!

Anna Nicole Smith

Ótímabært andlát Önnu Nicole Smith hefur vakið mikið umtal og sjálft umtalið hefur svo aftur orðið að umtalsefni. Hérlendis jafnt sem erlendis hafa blaðamenn og álitsgjafar deilt um það hvort það sé réttlætanlegt að eyða svo miklu plássi í umfjöllun um Önnu og um það hvað sá gífurlegi áhugi sem almenningur sýnir andláti hennar standi fyrir. Hér verður fjallað um það hvernig ekki er með nokkru móti hægt að fá botn í þessa umræðu nema tekið sé tillit til þess að ekki er víst að Anna hafi nokkurntíman verið til.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 13. feb 2007

Sjálfsvíg í sögulegu ljósi — III. hluti

Dauðaengill

Einhverskonar geðveiki er langsamlega algengasta ástæðan sem annálaritarar gefa fyrir sjálfsvígum fólks. Helmingur sjálfsvíga á 18. öld, sem tilgreind er ástæða fyrir, eru sögð hafa orðið vegna geðveiki sjálfsvegandans… Athyglisverður er munurinn á flokkunum „Geðveiki“ og „Vond freistni“ milli aldanna tveggja. Leiða má líkur að því að þau sjálfsvíg sem skrifuð voru á reikning vondrar freistni hafi í raun verið vegna geðsjúkdóma. Skrattinn og árar hans hafi hins vegar verið trúverðugir blórabögglar á öld galdraofsóknanna.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 8. feb 2007

Ein fartölva á hvert barn

OLPC - forsida

Ein fartölva á hvert barn, þetta hljómar eins og háðsádeila á hin ýmsu góðgerðarframtök, en svo er ekki. One Laptop Per Child (OLPC) eru góðgerðarsamtök staðsett í Bandaríkjunum, sem hafa það að markmiði að hvert einasta barn í þróunarlöndum fjær fái sína eigin fartölvu til að nota til lærdóms. Þessar tölvur verða með netaðgang, litaskjái og í raun allt sem dafnandi barn þarfnast (og ekkert sem það þarfnast ekki).

Lesa áfram »

þriðjudagur, 6. feb 2007

Brúðkaup á Íslandi í aldanna rás - 3. hluti

Brúðkaup - 3

Það að tvær manneskjur ákveði að ganga saman lífsins veg hefur líklega tíðkast frá árdögum mannsins. Slíkur sáttmáli tveggja manneskja er stór hluti af menningu okkar. Í þessari grein, sem er þriðji hluti af þremur, verður saga brúðkaupa á Íslandi rakin frá Þjóðveldisöld fram til dagsins í dag og skoðað hvernig brúðkaupsveislur og brúðkaupssiðir hafa breyst með tímanum.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 1. feb 2007

Innflytjendur til bjargar

Innflytjandi í kröfugöngu

Hér á landi hefur „frjósemishlutfall“ hverrar konu verið um 1,9 sem er þó mun hærra en hlutfallið í Evrópusambandsríkjunum sem er um 1,5.3 En þótt við stöndum okkur betur í að fjölga mannkyninu en flestar aðrar Evrópuþjóðir er það samt ekki nóg til að viðhalda mannfjöldanum og afleiðingarnar eru þær að unga fólkinu fækkar hlutfallslega en eldra fólkinu fjölgar. … Lausnin er einföld: það þarf að fjölga íbúum. Til þess eru tvær leiðir, að konur eignist fleiri börn og að stjórnvöld leyfi innflytjendum að koma hér til vinnu og setjast hér að ef það óskar þess.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN