Ótímabært andlát Önnu Nicole Smith hefur vakið mikið umtal og sjálft umtalið hefur svo aftur orðið að umtalsefni. Hérlendis jafnt sem erlendis hafa blaðamenn og álitsgjafar deilt um það hvort það sé réttlætanlegt að eyða svo miklu plássi í umfjöllun um Önnu og um það hvað sá gífurlegi áhugi sem almenningur sýnir andláti hennar standi fyrir. Hér verður fjallað um það hvernig ekki er með nokkru móti hægt að fá botn í þessa umræðu nema tekið sé tillit til þess að ekki er víst að Anna hafi nokkurntíman verið til.
Lesa áfram »