Japanir eru í augum Íslendinga, sem og annarra Vesturlandabúa, mjög sérstök þjóð. Þeir þykja mjög vestrænir miðað við aðrar Asíuþjóðir en einnig framandi og stundum óskiljanlegir. Svo mjög að það þykir flott og svalt að geta vitnað í dægurmenningu landsins og slegið um sem með orðum eins og otaku, hikikomori og nihonjinron. Mætti því ætla að þetta verði afskaplega svöl grein. Hugtakið otaku er einmitt eitt slíkra tískufyrirbrigða. Í ákveðnum hópum þykir það afar flott að kalla sig otaku sem er skondið þar sem orðið merkir einfaldlega lúði eða nörd. Það getur jafnvel þýtt „ofstækismaður“ í neikvæðasta skilningi orðsins.
Lesa áfram »