Greinar frá deginum 6th March, 2007

þriðjudagur, 6. mar 2007

Skila fíkniefnaforvarnir tilætluðum árangri?

Kókaín

Fíkniefnaforvarnir hafa verið í gangi í mörg ár, eða allt frá því að skaði fíkniefna og áhrif þeirra á samfélagið varð almennilega ljós. Fáir efast um að þessar forvarnir geri gagn, færri efast hvort allar þessar herferðir gegn notkun vímuefna hafi nokkur áhrif yfirleitt og jafnvel enn færri telja að herferðirnar hafi neikvæð áhrif. En börn og unglingar eru mjög sérstakt fólk sem getur verið erfitt að ná til. Það er jafnframt fjarstæða að ætla að ná til allra þessara ólíku unglinga og er því ómögulegt fyrir fíkniefnaforvarnir, í núverandi mynd allavega, að skila meira en sáralitlum árangri. En hver er þá góður árangur í fíkniefnaforvörnum? Þó svo að aðeins örfáum yrði bjargað frá þeirri böl sem eiturlyfjafíkn er væri þá forvörnin ekki peninganna virði? Það má eflaust deila lengi um þessar spurningar en eins og flestir vita þá eru peningar af skornum skammti og því auðvitað best að eyða þeim í áhrifaríkustu forvörnina.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN