
Fótbolti sem íþrótt og samfélagslegt fyrirbæri fær, hjá hinum venjulega borgara, meiri athygli dagsdaglega en kirkjan og hennar starfsemi. Þeir sem á annað borð hafa áhuga á fótbolta sameinast um að halda með ákveðnum félögum og styðja þau á allan þann hátt sem þeim er mögulegt. Þarna erum við með skipulagða athöfn þar sem áhangendur fótboltaliðs hópast saman á einn stað og taka þátt í athöfn.
Lesa áfram »