Ef raunveruleikinn væri háður skilgreiningum okkar og hugtökum þá væri raunveruleikinn á margan hátt ekki mögulegur. Gefum okkur til dæmis að þegar maður tekur af stað og gengur að dyrum, með það að markmiði að vera inni í herbergi, þurfi hann að komast yfir þröskuld herbergisins áður en hann geti talist inni í herberginu. Þegar maðurinn leggur af stað er ákveðin lengd í tíma og rúmi á milli hans og þröskuldsins, einhvern tíman frá því að maðurinn gengur af stað og þangað til hann er kominn inn í herbergið er lengdin í rúmi á milli upprunalegu stöðu mannsins og þröskuldsins hálfnuð. Á tímanum á milli þess að maðurinn gengur af stað og þangað til hann kemur að þröskuldinum helmingast leiðin aftur og aftur.
Lesa áfram »