
Er hægt að segja að maðurinn hegði sér allstaðar eins? Gæti verið að birtingamynd hegðunar mannsins sé það sem greinir á milli ólíkra samfélaga? Eitt er það sem virðist ríkja í flest öllum samfélögum, það er trú á tilvist þess óefnislega. Í því samhengi langar mig að athuga hvort galdrar, trúarbrögð og vísindi séu ef til vill sprottinn af sama meiði þó svo að birtingamynd þess sé ólík. Þetta þrennt virðist þó meðal annars þjóna þeim sameiginlega tilgangi að skýra fyrirbæri og atburði sem við skiljum ekki eða sjáum.
Lesa áfram »