Greinar frá mánuðinum May, 2007

fimmtudagur, 31. maí 2007

Gereyðing, guðlegur máttur og endurfæðing í animé og manga

Gereyðing Neo-Tokyo í Akira

Japanskar teiknimyndir (animé) og teiknimyndasögur (manga) eiga sér ríka hefð að baki sem miðill pólitískra skoðana.4 Manga- og animé-höfundar hafa þó sjaldan fjallað á beinan hátt um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki sem er eflaust afleiðing hinnar margföldu þöggunar.5 Upp úr 1980, þegar höfundar sem fæddir voru eftir seinni heimsstyrjöld komu fram á sjónarsviðið, varð gereyðing vinsælt viðfangsefni teiknaðra vísindaskáldsagna og voru fyrirmyndirnar greinilega sóttar til kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 29. maí 2007

Spor í sögu vestrænnar fagurfræði: Kant

Kant

Allt frá tímum Forn-Grikkja hefur fegurðin verið viðfangsefni mikilla hugsuða, en þó var fagurfræðin einungis jaðargrein í heimspekinni öldum saman. Höfundar fyrri tíma á borð við Platon, Aristóteles, Plótínus, Hóras, Longínus og Tómas af Akvínó fjölluðu um þetta viðfangsefni, en engu að síður var fagurfræði utangarðs, of huglæg og afstæð til að mönnum þætti hún fullnægjandi viðfangsefni fyrir heimspekina. Það er ekki fyrr en með þýska heimspekingnum Immanuel Kant (1724-1804) sem fagurfræði fór að njóta sammælis meðal annarra heimspekigreina og því má líta á hann sem upphafsmann nútíma fagurfræði.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 24. maí 2007

Lögfræðiþjónusta Lögréttu

Lagagyðjan

Um leið og ég hafði aðstoðað fyrsta skjólstæðinginn minn fylltist ég sterkum tilfinningum. Gífurlegu stolti yfir að sjá nám mitt nýtast í verki og finna að afrakstur síðustu fjögurra ára hefur fyllilega borgað sig. Um leið fylltist ég gleði yfir því að geta hjálpað fólki sem átti ekki í önnur hús að venda. Þessar tilfinningar voru þó ekkert í samanburði við þá ólýsanlegu tilfinningu sem reið yfir mig augnabliki síðar, þegar bylgja þakklætis streymdi yfir mig frá viðkomandi skjólstæðing.

Vera Sveinbjörnsdóttir segir hér frá Lögréttu, ókeypis lögfræðiþjónustu sem laganemar Háskólans í Reykjavík bjóða innflytjendum og fólki af erlendum uppruna.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 22. maí 2007

Hópaþróun: gagnlegt tæki

Hópur að störfum

Hópaþróunarkenningin var fyrst sett fram af dr. Bruce Tuckman árið 1965. Í stuttu máli fjallar kenningin um það að þegar settur er saman hópur af fólki sem á að starfa saman þá megi yfirleitt greina inna hópsins ákveðna þróun. Þeir sem öðlast smá innsýn í hópaþróunarkenningu Tuckmans geta nýtt sér hana til þess að eiga auðveldara með að greina vanda hópa, hvort sem þeir vinna með börnum eða unglingum í skólastofu, starfsmannahópum eða sjálfboðaliðum.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 17. maí 2007

Steve Jobs - Seinni hluti

Jobs - iMac

Þetta er síðari hluti greinar um Steve Jobs, fyrri hlutann má finna hér

Þegar hér er komið við sögu þá hefur Steve Jobs farið frá tölvufyrirtækinu sem hann stofnaði, Apple, og stofnað nýtt tölvufyrirtæki, NeXT, sem gengur ekki vel. Þar að auki er hann eigandi tölvufyrirtækisins Pixar, sem aftur á móti er orðið að mjög arðbæri fyrirtæki.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 15. maí 2007

Steve Jobs - Fyrri hluti

Steve Jobs - Macintosh

Steve Jobs er 52 ára gamall Kaliforníubúi. Hann er annar tveggja stofnenda tölvufyrirtækisins Apple og var forstjóri tölvuteiknimyndafyrirtækisins Pixar þar til Disney keypti það í fyrra. Við skulum skoða hvað er svona merkilegt við Steve Jobs.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 10. maí 2007

Hversvegna Nordjobb

Norddjobb

Á hverju sumri fara hundruðir norrænna ungmenna á vit ævintýranna gegnum Nordjobb. Þau fá tækifæri til að búa og starfa í öðru norðurlandi sumarlangt og öðlast þannig innsýn í líf og lifnað frændþjóðanna.

Helga Vollertssen segir frá því hvernig fyrirbærið Norddjobb varð að veruleika, þeim hugsjónum sem þar búa að baki og því hvað það að vera Norddjobbari felur í sér.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 8. maí 2007

Samastaður í tilverunni

Fræðimaður

Ég var tekin inn í ReykjavíkurAkademíuna haustið 2004. Félagi minn leigði á einni skrifstofunni eitt fjögurra borða í félagi við ungan sagnfræðing. Sá síðarnefndi ætlaði í burtu í nokkra mánuði og vildi framleigja hálfa borðið sitt. Ég sló til og til að gera langa sögu stutta ílengdist ég í ReykjavíkurAkademíunni í rúm tvö ár og endaði með fínasta prívatkontór uppi á fimmtu hæð með útsýni yfir Akrafjallið, Skarðsheiðina og upplifði hinn fjólubláa draum fræðimannsins.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 3. maí 2007

Konur og fjölmiðlar: Kosningarbaráttan 2003 - II. hluti

Tískuteymi SI

Meirihluti kvennanna taldi kvenframbjóðendur fá mun minni umfjöllun en karla í sambærilegum sætum. Kvenframbjóðendur væru gjarnan hunsaðar af fjölmiðlum og sjaldan væri haft samband við þær. Ástæðan að baki því, að þeirra mati, var skortur á áhuga á því sem konurnar höfðu fram að færa.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 1. maí 2007

Konur og fjölmiðlar: Stjórnmálakonur í gini ljónsins? - I. hluti

Gender Media

Stjórnmál halda þó áfram að vera fyrst og fremst vettvangur karla. … Ef litið er á stjórnmál út frá sögunni þá má sjá að þau hafa verið sköpuð, þeim stjórnað og þau túlkuð og skilgreind af körlum. Hin karllægu gildi eru ráðandi þegar kemur að almennum skilningi á stjórnun og valdi. Stjórnmál hafa frá upphafi verið skilgreind út frá fjarveru kvenna, ákvarðanataka fer enn fram að miklu leyti án kvenna og þeim hefur verið komið í sérlega óhagstæða stöðu á þessu sviði þjóðfélags okkar.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN