Greinar frá mánuðinum June, 2007

fimmtudagur, 28. jún 2007

Góð börn fara til himnaríkis, tónlistarunnendur fara til hljóðfærahelvítis

Hljóðfærahelvítið

Helvíti Bosch endurspeglar bölsýni samtímans og trúna á þau hroðalegu örlög sem syndugt mannkynið átti yfir höfði sér. Tákn leika þar stórt hlutverk meðal annars til að sýna áhorfandanum fyrir hvaða löst er refsað hverju sinni. Táknin eiga gjarnan rætur sínar að rekja til hollenskrar þjóðtrúar en einnig eru sum þeirra persónuleg sem veldur því að verk Bosch eru að hluta illskiljanleg í dag. Eitt slíkra verka er hægri vængur þrímyndar sem er gjarnan kölluð Garður veraldlegra lystisemda (um 1504) eftir aðalviðfangsefni myndarinnar. Vængurinn sýnir refsingar syndugra manna og kvenna í helvíti en líkt og í öðrum verka hans eru tákn lykillinn að merkingu myndarinnar í heild sem og smærri eininga.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 21. jún 2007

Jafnrétti er ekki nóg

karlar og konur

Vart má deila um að kynjamunarhugmyndin hafi haft víðtæk áhrif á stöðu kvenna í heiminum, enda hefur hún gert þeim kleift að keppa við karlmenn um flest ef ekki öll veraldleg gæði. En njóta konur raunverulegs jafnréttis? Enn skortir t.d. á að hlutur kvenna í stjórnunarstöðum, og þar með áhrif þeirra á mótun samfélagsins, sé jafn hlut karla, hvort sem litið er til atvinnulífsins eða stjórnmála. Vandamálið felst í því að þeir vegir sem konum hafa verið gerðir færir liggja um reynsluheima karlmanna.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 14. jún 2007

„Vekið ekki næturvörðinn að óþörfu“

Horft út um glugga Lyfjafræðisafnsins

Lyfjafræðisafnið er um margt sérstakt. Upphaf þess má rekja til nokkurra lyfjafræðinga sem tóku sig saman seint á áttunda tug síðustu aldar og hófu markvisst að safna munum og minjum tengdum apótekum og lyfjagerð á Íslandi. Afrakstur þessarar framsýni er afar áhugavert safn, sem þó verður að teljast eitt best varðveitta leyndarmálið í íslenskum safnaheimi. Í greininni sem hér fer á eftir segir Sólveig Ólafsdóttir lesendum frá leyndardómum Lyfjafræðisafnsins.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN