Greinar frá deginum 5th July, 2007

fimmtudagur, 5. júl 2007

Spor í sögu vestrænnar fagurfræði: Hegel

Hegel

Af beinum sporgöngumönnum Kants var það Georg Wilhelm Friedrich Hegel (1770-1831) sem átt hefur hvað veigamesta og langlífasta framlagið til heimspeki í Þýskalandi og allri Evrópu, og skrif hans um fagurfræði eru stór hluti af því framlagi. Á þriðja áratug 19. aldar var hann heimspekiprófessor við háskóla í Berlín og hélt þar oft fyrirlestra um listheimspeki; skrif hans um fagurfræði voru í raun sett saman úr glósum nemenda og minnisblöðum hans sjálfs eftir dauða hans. Hann var hugsanlega síðasti vestræni heimspekingurinn sem reyndi að hanna heimspekilegt kerfi sem átti að ná yfir alla þætti raunveruleika okkar, og fagurfræðin skipar mikilvægan sess í kerfi hans, líkt og hjá Kant.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN