
Þegar Pýramídinn var yfirgefinn árið 1998 var nánast allt skilið eftir — líkt og menn hefðu einfaldlega staðið upp frá borðum en skilið uppvaskið eftir til morguns. Pottablóm og kryddjurtir standa skrælnuð í gluggunum, hálftómar flöskur safna botnfalli á borðum, bækur rykfalla í hillum, og boltar liggja hreyfingarlausir á gólfi íþróttahússins eins og þeim hafi síðast verið skotið í mark í gær. Pýramídinn er sannkallaður draugabær — hann hefur á að skipa öllu sem bæjum ber, nema að íbúana vantar.
Lesa áfram »