Greinar frá mánuðinum August, 2007

föstudagur, 17. ágú 2007

Steinborar og norrænir sagnfræðingar

Sagnfræðingur

Leiði ég hugann að hljóðum sem tengjast háskólanámi mínu er líklega eitt hljóð eftirminnilegra en önnur. Það er surgið og skröltið sem heyrist þegar borað er í steinvegg. Það hljóð fylgdi mér bæði á heimili og í skóla meira og minna allan minn háskólaferil. Það hefur skapað þá tengingu í mínum huga að þegar ég sé aðalbyggingu HÍ þá kemur surgið í steinbornum í hugann. Þeir sem þekkja þetta hljóð vita að það er truflandi og venst ekki og með það í bakgrunni kemst einbeitingin tæplega að. Það er ekki „bakgrunnstónlist“ andlegra afreka. Að heyra og sjá eitthvað sem líkist eldri upplifunum sendir mann oft til baka í huganum, þ.a.l. leið mér í síðustu viku dálítið eins og ég væri kominn aftur á skólabekk, en síðari hluta vikunnar eyddi ég löngum stundum í húsnæði Háskóla Íslands og hlýddi á fyrirlestra blandaða með hamarshöggum, járnaglamri og borhljóðinu eftirminnilega.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 9. ágú 2007

Á atómöld

Atómsprengja

Ég vissi ekki margt um heimspólítík þegar ég var lítil stúlka. En ég vissi að yfir mér og fjölskyldu minni og ekki bara öllum íbúm smábæjarins sem ég bjó í heldur líka fólkinu í útlöndum, vofði skelfileg ógn. Hvenær sem var gat brjálaður forseti, hvort sem var í
austri eða vestri, ýtt á takka og sett kjarnorkusprengjur af stað.

Lesa áfram »

fimmtudagur, 2. ágú 2007

Allar efasemdir þínar eru bara dropi í hafið miðað við það sem þú veist í raun ekki

Descartes

Draumar eru senur í huga okkar sem við upplifum í svefni, sumar ósköp hversdagslegar, aðrar mjög óvenjulegar, fáránlegar, eða jafnvel ógnvekjandi. Á meðan á draumnum stendur er upplifunin mjög raunveruleg, stundum svo raunveruleg að sá er dreymir er ekki alveg viss í vöku hvort þetta átti sér stað eða ekki. Hér verður fjallað um það hvernig við upplifum drauma og hvers vegna við ættum að taka það með fyrirvara hvað sé draumur og hvað veruleiki.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN