Ég vissi ekki margt um heimspólítík þegar ég var lítil stúlka. En ég vissi að yfir mér og fjölskyldu minni og ekki bara öllum íbúm smábæjarins sem ég bjó í heldur líka fólkinu í útlöndum, vofði skelfileg ógn. Hvenær sem var gat brjálaður forseti, hvort sem var í
austri eða vestri, ýtt á takka og sett kjarnorkusprengjur af stað.