
Þegar aðilum að viðræðunum eru gerð skil er auðvitað nærtækast að byrja á ríkinu sem þetta snýst allt um, nefnilega Norður-Kóreu. Eins og glögglega má sjá á hegðun Norður-Kóreu í alþjóðasamskiptum í gegnum árin, hefur ríkið stundað sína pólitísku leiki úti á ystu nöf. Margir gætu túlkað þessa hegðun sem hreina brjálsemi, eða jafnvel einhverskonar pólitíska fjárkúgun.
Lesa áfram »