
Íbúð no.50 við Sadovaja hringbrautina í Moskvu var eitt sinn íbúð
rithöfundarins Mihail Búlgakovs. Þegar Búlgakov dó, gleymdu honum flestir og allir gleymdu að hann hefði nokkru sinni búið þarna. Búlgakov varð að ofurstirni þegar skáldsaga hans meistarinn og Margaríta fékk loksins að birtast á prenti, en þá hafði Búlgakov legið í gröf sinni í 25 ár. Í sögunni kemur Djöfulinn til Moskvu einn góðan veðurdag og fær sér íbúð við Sadovjaja hringbrautina, nánar tiltektið íbúðina sem Búlgakov bjó sjálfur í. Í bókinni gerast hinir furðulegustu hlutir í íbúð no.50. Í raunveruleikanum gerðust líka undarlegir hlutir við íbúð no.50.