Heimsmynd búddhisma felur í sér skarpan greinarmun á sýnd og veruleika. Skýrasta dæmið mun líklega vera það að samkvæmt búddhisma er sjálfið (enska: ego; palí: atta; sanskrít: atman) ekki til, að minnsta kosti ekki sem slíkt. Það er þó vissulega “til“ í einhverjum skilningi; okkur sýnist við hafa eitthvað sem kallast getur ‘sjálf’, en í raun og veru er ekkert slíkt til. Það fer svo eftir stefnum innan búddhisma hvort þetta sama eigi við um önnur hugtök okkar einnig og hvort gera megi grein fyrir því hvað sé til í raun og veru sem skýri þetta.
Lesa áfram »