
Árið 1998 pakkaði ég saman þeim tuttugu kílóum sem ég taldi mig síst getað verið án yfir eitt ár og tróð reyndar öðru eins í handfarangur. Ég var á leiðinni til Montpellier í Frakklandi þar sem ég ætlaði að dveljast eitt ár sem Erasmus skiptinemi. Ástæður mínar fyrir förinni voru einfaldar. Í fyrsta lagi mæltist frönskuskor Háskóla Íslands eindregið til þess að frönskunemar sem ætluðu sér að taka frönsku til 90 eininga tækju eitt ár af þremur úti í Frakklandi. Í öðru lagi leist mér einfaldlega bráðvel á það að komast aftur út til Frakklands
Lesa áfram »