
Í Ævintýralandi geta börnin brugðið á leik og átt ógleymanlegar stundir á meðan pabbi og mamma versla í Kringlunni. Meðal þess sem bíður barnanna í Ævintýralandi má nefna risakastala, leikjatölvur, málarahorn, leiksvið, bækur og freistandi úrval af spennandi leikföngum..
Tilvitnunin hér að ofan er tekin af heimasíðu Ævintýralands Kringlunnar. Þar kemur m.a. fram að gegn gjaldi er hægt að halda afmælisveislur í Ævintýralandi. En hvað er Ævintýraland og er ævintýrið ógleymanlegt? Og hvert er hlutskipti foreldranna sem ráfa um ranghala Kringlunnar meðan börnin njóta hins freistandi úrvals spennandi leikfanga og veitinga af vinsælum veitingastöðum?
Lesa áfram »