Greinar frá deginum 15th November, 2007

fimmtudagur, 15. nóv 2007

Fortíðin er framandi heimur - um lífshlaup og kyngervi

Freyr. Myndin er fengin af vefsíðu Þjóðminjasafns Svíþjóðar, www.historiska.se.

Atriði sem aðgreina fólk hvort frá öðru, sem og þau sem tengja það saman, eru mjög mikilvægir þættir í félagslegu lífi, segir Meskell, á hvaða tíma sem er. Það breytist ekki, segir hún, en birtingarmynd og tjáningarform þessara þátta geta verið mjög frábrugðin þeim sem greina má innan vestrænnar menningar í dag.

Vestrænar hugmyndir um tvö kyn, karlkyns og kvenkyns, hafa oft ráðið túlkunum á kyngervum í gröfum þar sem aðeins hefur verið stuðst við líffræðilegar greiningar á kynferðum. Þó svo að þess konar greining geti hjálpað okkur við túlkun á efninu, þá snertir hún bara yfirborðið og mörg smáatriði fara forgörðum þegar þeirri aðferð er beitt.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN