
Í tæpa þrjá áratugi hefur rithöfundurinn Diana Wynne Jones sent frá sér eina bók á ári, hugmyndarík og ærslafull ævintýri fyrir börn og fullorðna. Hún var lengi ókrýnd drottning breskra barnabókmennta og þurfti aðeins nýlega að víkja fyrir J.K. Rowling, en þó ekki fyrr en í fulla hnefana. Árið 1986 gaf hún út Howl’s Moving Castle sem fjallar um Sophie, verndaða og hlédræga unglingsstúlku sem eldist um rúma sjö áratugi í einu vetfangi. Til að aflétta álögunum verður hún að hafa uppi á töframanninum Howl sem einn getur komið í veg fyrir að Sophie verði ellidauð áður en hún kemst af gelgjuskeiði. Fimmtán árum eftir útkomu bókar Jones ákváðu forsvarsmenn Studio Ghibli, eins virtasta teiknimyndastúdíós Japans, að gera mynd eftir henni.
Lesa áfram »