
Þann 23. nóvember s.l., stóðu Miðstöð munnlegrar sögu og Minni — félag um munnlegan menningararf fyrir athyglisverðri ráðstefnunni um byggðarsögu og munnlegar heimildir. Bar ráðstefnan heitið Raddir að heiman — Munnlegar heimildir í byggðarsögu og fór fram í Þjóðarbókhlöðu. Var mæting góð og komu þáttakendur víðs vegar að af landinu. Ráðstefnunni stjórnaði formaður Minnis, Rósa Þorsteinsdóttir. Hér að neðan verður stiklað á stóru um þau efni sem á samkomunni bar á góma.
Lesa áfram »