Greinar frá deginum 11th December, 2007

þriðjudagur, 11. des 2007

Afsakið, getur þú vísað mér á útgönguleið?

Umræðan um hið alsjáandi auga stóra bróður skýtur reglulega upp kollinum. Þessi myndlíking vísar að sjálfsögðu til skáldsögu George Orwellls, 1984 en þar var stóri bróðir holdgervingur ríkisins og hafði í nafni meintrar umhyggju komið fyrir eftirlitskerfi sem náði inn á hvert heimili. Sérhver þegn er þannig stöðugt undir eftirliti án þess að geta horft til baka á stóra bróður. Þessi mynd sem Orwell dregur upp af valdinu og virkni gæti í fyrstu virst vera í góðu samræmi við hugmyndir heimspekingsins Michael Foucault um hið ósýnilega vald sem byggist á stöðugu eftirliti. Þegar betur er að gáð er þó fleira ólíkt en líkt. Hér í næstu málsgreinum mun ég leitast við að útskýra hvað Foucault á við þegar hann talar um að valdið sé ósýnilegt og hverskonar fyrirbæri það er eiginlega, þetta Panopticon sem hann tönnglast á.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN