
Skilgreining mismunandi samhengja og/eða skala viðheldur þeirri hugmynd að það sé greinarmunur á hinu sértæka og hinu almenna, á efnahags- og félagslegu samhengi, táknfræðilegu samhengi og hinu hversdagslega samhengi. Slíkur munur gerir túlkun flókna þar sem fræðimaðurinn þarf að ferðast á milli mismunandi samhengja og skala og brúa bil þar á milli. Hann/hún þarf að mynda þræði, þá bönd og loks reipi. Í tilraun til að greiða götu fræðimannsins hafa verið grafnar hugmyndafræðilegar gjár sem ef betur er að gáð má jafnvel ganga fram hjá með öllu án hjálpar-reipis.
Lesa áfram »